Komin í skóla eina ferðina enn!

Monday, February 20, 2006

mánudagur

Já, eftir helgi kemur víst mánudagur. Hlýr mánudagur í dag. Gott mál. Ótrúlegt en satt þá er febrúar brátt á enda. Rétt rúmlega vika og búmm...mars. Þá verður nú skólinn svo gott sem búinn. Bara rúmlega mánuður eftir. Skólasókn lýkur 7. apríl og því ljóst að kerla verður að herða sig í lestri. Ætlaði að taka pakkann með trompi í byrjun annar, en síðan hefur eitthvað losnað um slík áætlanahöft. Verkefni framundan sem ég þarf að klára fyrir 7. apríl eru:

45% paraverkefni - Mat á árangri
45% einstaklingsritgerð - Mat á árangri
30% hópverkefni - Stefnumiðuð stjórnun
25% hópverkefni - Stjórnun þjálfunar og starfsþróunar
15% hópverkefni - Vinnusálfræði
35% paraverkefni - Vinnusálfræði

Já, semsagt...Elsa; hættu að blogga!

1 Comments:

  • Ja það er gott að einhver bloggar þó! Er með lömunarveiki á því sviði, ætli það sé ekki réttast að leggja "frúna" niður bara...

    Hittumst fyrr en síðar, það er betra, lufsutuskan!

    By Blogger Kristborg Bóel, at 1:48 AM  

Post a Comment

<< Home